Lýsing
Þessir skemmtilegu bangsar varpa mynd af sólarlagi og fljúgandi fuglum á veggi og loft í herberginu og skapa þannig notalegt og róandi andrúmsloft.
- Kemur í þremur mismunandi útgáfum: skjaldbakan Tim, broddgölturinn Henry og fuglinn Shally.
- Svefnprógram í þremur skrefum, þar sem myndirnar verða alltaf rólegri og hljóðlátari þangað til að bangsinn slekkur á sér eftir 30 mínútur.
- Bangsinn varpar appelsínugulu sólarlagi á veggi og loft, en appelsínuguli liturinn er sagður auka framleiðslu melatóníns.
- Hægt er að velja á milli hjartsláttar, vögguvísu og afrískrar tónlistar.
- Bangsinn getur kveikt á sér sjálfkrafa þegar barnið byrjar að gráta.