Afhending vöru, verð og sendingarkostnaður:

 

Öll verð í vefverslun er með inniföldum 24% vsk. Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Við sendum allar vörur með Dropp nema annað sé sérstaklega tekið fram við pöntun vörunar. Burðargjald greiðist af kaupanda. Sendingarkostnaður kaupanda er samkvæmt gjaldskrá eins og fram kemur í pöntunarferli.  Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar. Húsgagnaheimilið - Barnaheimilið ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í flutningum á vegum Dropp eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Húsgagnaheimilið - Barnaheimilið ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.