Lýsing
Vönduð og sterkbyggð fjölskyldukoja frá FLEXA sem sameinar tímalausa danska hönnun, þægindi og góða nýtingu á plássi.
FLEXA CLASSIC kojan er hönnuð fyrir fjölskyldur sem vilja nýta svefnplássið vel án þess að fórna þægindum. Með rúmgóðu 140 × 200 cm neðra rúmi og 90 × 200 cm efra rúmi býður kojan upp á svefnpláss fyrir allt að þrjá einstaklinga.
Kojan er framleidd í Evrópu úr gegnheilum furuviði og einkennist af traustri byggingu og klassískri skandinavískri hönnun. Hún hentar jafnt á heimilið sem og í sumarbústaði og orlofshús þar sem þörf er á góðri nýtingu svefnpláss.
Helstu eiginleikar
-
Sterkbyggð koja með tvíbreiðu neðra rúmi
-
Klassísk dönsk hönnun frá FLEXA
-
Framleidd í Evrópu úr gegnheilum furuviði
-
Svefnpláss fyrir allt að þrjá einstaklinga
-
Stigi með "anti slip" á þrepum
-
Hægt að staðsetja stigann á hvorum enda rúmsins
-
Öryggisprófuð samkvæmt evrópskum stöðlum
Tæknilegar upplýsingar
-
Dýnustærð efra rúms: 90 × 200 cm
-
Dýnustærð neðra rúms: 140 × 200 cm
-
Utanmál: 210 × 161 × 184 cm (L × B × H)
-
Efni: Gegnheil fura og birkikrossviður
-
Hámarksburðarþol: 300 kg
-
Ráðlagður aldur í efri koju: Frá 6 ára aldri
-
Ráðlagður aldur í neðri koju: Frá 3 ára aldri
-
Framleiðsla: Evrópa
-
Ábyrgð framleiðanda: 5 ár
Athugið: Dýnur eru seldar sér.
