i-Level PRO™ Bilstóll með 360° snúnings base-i


Verð:
Tilboðs verð79.900 kr

Lýsing

Joie i-Level Pro er vandaður ungbarnabílstóll sem sameinar framúrskarandi öryggi, þægindi og sveigjanleika frá fyrstu dögum barnsins. Stóllinn kemur með Encore 360° snúnings Isofix base-i, sem auðveldar að setja barnið í og úr bílnum á þægilegan hátt.

Bílstóllinn hentar frá fæðingu og upp í um 15 mánaða aldur (40–87 cm / allt að 13 kg) og er vottaður samkvæmt UN R129/03 i-Size öryggisstaðlinum.

Einstakir hallamöguleikar með allt að 157° halla hjálpa barninu að sitja í þægilegri og eðlilegri stöðu, bæði í bílnum og á kerru. Hægt er að stilla hallann beint á base-inu með þremur mismunandi hallastillingum.

Memory foam höfuðpúði og 10 hæðastillingar tryggja góðan stuðning og þægindi eftir því sem barnið vex.

Stór framlengjanlegur skermur með rennilás veitir góða vernd gegn sól og vindi, og hægt er að festa stólinn á flestar kerrur með bílstólafestingum.

Einnig er hægt að nota bílstólinn án base með bílbeltisfestingu, sem veitir t.d. aukinn sveigjanleika í ferðalögum og mismunandi bílum.

  • Encore 360° snúnings Isofix base fylgir með.
  • Hægt er að nota bílstólinn án base.
  • Hentar frá fæðingu til ca. 15 mánaða.
  • 3 hallastillingar með allt að 157° halla.
  • Memory foam höfuðpúði.
  • 10 hæðastillingar á höfuðpúða.
  • Framlengjanlegur UV skermur með rennilás.
  • Samþykktur samkvæmt UN R129/03 (i-Size).
  • TUV samþykktur fyrir notkun í flugvél.
  • Passar á flestar kerrur með millistykkjum.
  • Encore base samhæft við næsta stól: Joie Harbour.
  • Af öryggisástæðum er ekki hægt að skila bílstólum né base-um. Við bjóðum upp á að máta bílstólinn og base-ið í bílinn ef þess er óskað í verslun okkar til að ganga úr skugga um að hann passi. 


Þú gætir haft áhuga á