Lýsing
Bak- og framvísandi bílstóll frá Joie. Hentar börnum frá fæðingu og upp að 135cm ca.10 ára. Bílstóllinn hefur 5 hallastillingar á 360° snúnings base. Joie I-Pivot Grow LX er framleiddur eftir nýjustu reglugerðinni í Evrópu R129/03.
- Öryggisstaðall ECE R129/03.
- Bak- og framvísandi bílstóll á 360° snúnings base.
- Getur verið bakvísandi að ca 18.5 kg (4 ára) eða 105 cm.
- 360° snúningur.
- Hægt að nota frá fæðingu fram að ca. 10 ára (40cm - 135cm).
- Hægt er að nota 5 punkta öryggisbeltið fram að 105cm eftir það er 3ja punkta belti bílsins notað.
- Bílstóllinn kemur fastur á base-i með ISOFIX festingum.
- Ungbarnainnlegg fylgir með.
- 5 hallastilllingar í bak- og framvísandi stöðu (hægt er að snúa stólnum í hallastillingu).
- Memory foam fóðraður höfuðpúði með 14 hæðastillingum.
- Öflug hliðarvörn.
- Áklæði með góðri öndun.
- Af öryggisástæðum er ekki hægt að skila bílstólum né base-um. Við bjóðum upp á að máta bílstólinn og base-ið í bílinn ef þess er óskað í verslun okkar til að ganga úr skugga um að hann passi.