Lýsing
360° æfingabolli sem hjálpar barninu að læra að drekka sjálft, líkt og úr venjulegu glasi.
Bollinn er með sérhönnuðum 360° drykkjarbrún sem gerir barninu kleift að drekka hvar sem er af brúninni. Vökvinn rennur aðeins þegar barnið þrýstir vörunum að brúninni og dregur þannig úr hættu á að hellist niður.
Bollinn er léttur og endingargóður, sérstaklega hannaður fyrir litlar hendur. Tvö handföng auðvelda barninu að halda á bollanum en hægt er að fjarlægja þau þegar barnið er orðið öruggara með að drekka sjálft.
Með bollanum fylgir hlífðarlok sem heldur drykkjarbrúninni hreinni og lekavarnarskífa sem hentar vel þegar bollinn er tekinn með í ferðalag eða út úr húsi.
Auðvelt er að taka bollann í sundur og þrífa. Hann má bæði handþvo og setja í uppþvottavél á mildu þvottakerfi.
Helstu eiginleikar
-
360° drykkjarbrún – barnið getur drukkið allan hringinn
-
Vökvinn rennur aðeins við þrýsting frá vörum barnsins
-
Dregur úr því að drykkur hellist niður
-
Léttur og höggþolinn
-
Laus handföng sem auðvelda litlum höndum að halda á bollanum
-
Hlífðarlok og lekavarnarskífa fylgja með
-
Auðvelt að taka í sundur og þrífa
-
Má fara í uppþvottavél á mildu þvottakerfi
-
Hentar vel heima og á ferðinni
Tæknilegar upplýsingar
-
Rúmmál: 340 ml
-
Aldur: Frá 12 mánaða aldri
-
Gerð: 360° æfingabolli
-
Þrif: Handþvottur eða milt þvottakerfi í uppþvottavél
