Barnaburðarpoki - Trekk


Verð:
Tilboðs verð39.900 kr

Lýsing

Trekking bakburðarpokinn er tilvalinn kostur fyrir fjölskyldur á ferðinni sem leggja áherslu á þægindi, öryggi og hagnýta hönnun. Burðarpokinn er aðeins 2,6 kg þyngd er hann meðal léttustu barnaburðapokum á markaðnum, án þess þó að gefa eftir hvað varðar stöðugleika, gæði eða endingu. Hann er sérstaklega hannaður til að létta álagi af foreldrum í lengri gönguferðum og útivist, án þess að skerða þægindi barnsins.

Stillanlegt burðarkerfi í stærðum S–M–L, ásamt vel bólstruðum axlarólum, brjóstól og ergónómískt hönnuðu og mjaðmabelti, tryggir góða þyngdardreifingu og dregur verulega úr álagi á bak, axlir og mjaðmir. Mjúk bólstrun á öllum snertiflötum veitir aukin þægindi, jafnvel við langvarandi notkun.

Fyrir barnið býður pokinn upp á ergónómískt sæti með öruggu festikerfi og stillanlegum fótaólum sem stuðla að þægilegri og stöðugri setstöðu. Sólskyggnið veitir góða vörn gegn beinu sólarljósi, á meðan traustur standur gerir auðvelt og öruggt að leggja pokann frá sér þegar barnið er sett í eða tekið úr pokanum.

Bakburðarpokinn er einnig einstaklega hentugur í daglegri notkun, með rúmgóðu aðalhólfi og auka vösum á mjaðmabeltinu sem rúma snarl, drykki, bleiur, fatnað og aðra nauðsynlega hluti á ferðinni. Hann hentar því jafnt í gönguferðir, náttúruferðir, ferðalög sem og borgarferðir.

Þökk sé nettum sniðum er auðvelt að flytja pokann og geyma þegar hann er ekki í notkun. Nútímalegt útlit hans sameinar fallega hönnun og framúrskarandi notagildi.

Helstu eiginleikar:

  • Mál: 30 × 73 × 85 cm
  • Þyngd: aðeins 2,6 kg
  • Stillanlegt burðarkerfi (S–M–L)
  • ergónómískt sæti með öryggisbelti og stillanlegum fótaólum
  • Hægt er að fjarlæga sólskyggni
  • Bólstrað mjaðmabelti með vösum
  • Traustur standur
  • Rúmgott geymsluhólf
  • Endingargóð efni sem auðvelt er að þrífa

Þú gætir haft áhuga á