Slumberland – Premium barnadýna 80×160 cm


Verð:
Tilboðs verð69.900 kr

Lýsing

Góður svefn byrjar á réttri dýnu.
Barnið þitt eyðir stórum hluta sólarhringsins í rúminu sínu og því skiptir máli að dýnan veiti góðan stuðning, góða loftun og þægilegt svefnumhverfi.

Slumberland frá Träumeland er hágæða dýna sem er hönnuð til að veita líkamanum góðan og jafnan stuðning á meðan barnið er að vaxa. Vandaður svampkjarni með 3D þægindapúðum aðlagast líkamanum punkt fyrir punkt, á meðan loftrásir í kjarnanum tryggja gott loftflæði í gegnum dýnuna.

Dýnan er með tvö stífleikastig og getur því fylgt barninu eftir því sem það stækkar. Slumberland er jafnframt hönnuð til að halda formi og stuðningi í mörg ár.

Helstu eiginleikar

  • 3D þægindapúðar sem aðlagast líkamanum punkt fyrir punkt og veita jafnan og þægilegan stuðning
  • Framúrskarandi loftun með lóðréttum loftrásum og opnu rými á milli 3D þægindapúðanna
  • Tvö stífleikastig – mýkri og meðalstíf hlið sem gera kleift að aðlaga dýnuna eftir þyngd barnsins
  • Mælt með meðalstífu hliðinni frá um 35 kg líkamsþyngd
  • TENCEL™ áklæði sem hjálpar til við rakastjórnun og dregur úr svitamyndun
  • Loftunarrönd á hliðum sem eykur loftflæði enn frekar
  • Áklæði má þvo við allt að 60°C
  • Hentar ofnæmisfólki
  • Eðlisþyngd 35 kg/m³
  • Hönnuð til að halda formi og stuðningi í mörg ár
  • Framleidd í Austurríki

Dýnukjarni – stuðningur og góð loftun

Kjarninn í Slumberland er byggður upp úr sveigjanlegum 3D þægindapúðum úr hágæða svampi. Púðarnir gefa eftir þar sem þrýstingur kemur og hjálpa dýnunni þannig að aðlagast líkama barnsins og veita stuðning þar sem hans er þörf.

Opin rými á milli 3D þægindapúðanna ásamt lóðréttum loftrásum skapa mjög gott loftflæði í gegnum dýnuna og hjálpa til við að leiða frá hita og raka.

Dýnan er með mýkri og meðalstífa hlið. Träumeland mælir með að snúa henni yfir á meðalstífu hliðina þegar barnið nær um 35 kg líkamsþyngd.

Eðlisþyngd kjarnans: 35 kg/m³.

Hlífðaráklæði – TENCEL™

Mjúkt og loftgott áklæðið er úr 32% TENCEL™ og 68% pólýester og er steppað með mjúkri fyllingu.

TENCEL™ trefjarnar eru þekktar fyrir góða rakastjórnun og hjálpa til við að draga úr svitamyndun. Loftunarrönd á hliðum dýnunnar eykur loftflæðið enn frekar.

Áklæðið má taka af, þvo við allt að 60°C og þurrka í þurrkara á vægri stillingu.

Vönduð austurrísk framleiðsla

Slumberland er framleidd í Austurríki af Träumeland með áherslu á vönduð efni, góða loftun og langvarandi stuðning.

Efni dýnunnar eru prófuð samkvæmt ströngum gæða- og öryggiskröfum.

Þú gætir haft áhuga á