Lýsing
Dúkkurnar frá Arias eru einstaklega vandaðar og fallegar. Arias er frá Alicante, öll framleiðsla á Arias dúkkunum fer fram á Spáni.
Arias er með tvær vörulínur í dúkkunum hjá sér. REBORN og ELEGANCE. Í grunninn er það sama dúkkan en REBORN er aðeins meira handunnin með litlum hlutum eins og æðum, roða, naglalakk og fleira.
Alejandra dúkkan frá Arias er í fallegum hvítum fötum og er með húfu í stíl. Alejandra kemur í fallegum svefnpoka. Einnig fylgir snuð og bleyja með dúkkunni.
Alejandra dúkkan er úr Reborn línunni frá Arias. Hún er því handunnin og hugsað út í hvert smáatriði á henni.
Hæð: 40 cm.