Lýsing
VTech Stack & Splash Bathtime Boats gera baðtímann enn skemmtilegri með litríkum bátum, vatnaleik og sætum dýravinum. Fullkomið baðleikfang sem sameinar skemmtun, skynjun og lærdóm í einni skvettuveislu.
Settið inniheldur 9 marglita báta sem hægt er að stafla, tengja saman eða nota til að sigla dýravinunum um baðið. Barnið getur raðað þeim á mismunandi vegu og skapað nýja leikmöguleika í hvert skipti.
Með skemmtilegum fílaspreyjara má sprauta vatni og skapa enn meiri gleði í baðinu. Dýrabollarnir eru fullkomnir til að ausa og hella vatni, og barnið getur fylgst með vatninu renna út um mismunandi stór göt.
Leikurinn hjálpar barninu að læra liti, efla samhæfingu handa og augna og þjálfa fínhreyfingar á meðan þið leikið ykkur saman.
Þegar baðtímanum lýkur er auðvelt að taka dýrabollana og sprayjarann í sundur til að þrífa og láta þorna.
Frábær leið til að gera baðstundina bæði skemmtilega og lærdómsríka.
