Lýsing
Dúkkurnar frá Arias eru einstaklega vandaðar og fallegar. Arias er frá Alicante, öll framleiðsla á Arias dúkkunum fer fram á Spáni.
Arias er með tvær vörulínur í dúkkunum hjá sér. REBORN og ELEGANCE. Í grunninn er það sama dúkkan en REBORN er aðeins meira handunnin með litlum hlutum eins og æðum, roða, naglalakk og fleira.
Þessar dúkkur koma tvær saman í burðarrúmi. Dúkkurnar eru gerðar úr flauelsmjúku vinyl. Dúkkurnar koma í bleikum og bláum fötum og með húfu sem framleidd eru úr hágæða efnum. Dúkkunum fylgja tvö snuð.
Hæð: 26 cm.