Lýsing
Hoppekids ECO Comfort 70x160 cm rúmið er fullkomin lausn fyrir minni barnaherbergi eða fyrir börn sem eru ekki alveg tilbúin í stærra rúm. Fallegt og hagnýtt barnarúm með tímalausri skandinavískri hönnun sem passar auðveldlega inn á flest heimili.
ECO Comfort línan frá Hoppekids er hönnuð með einfaldleika, gæði og notagildi í huga. Comfort línan er léttari og einfaldari uppbygging en ECO Luxury línan og er því frábær kostur fyrir þá sem vilja vandað og fallegt barnarúm á hagkvæmara verði. Luxury línan býður upp á meiri sveigjanleika og möguleika á að hækka rúmið eða breyta því síðar í miðhátt rúm, hátt rúm eða koju.
Rúmið fæst í nokkrum fallegum litum og hægt er að bæta við bæði öryggisslá og rúmfataskúffum eftir þörfum.
Svansvottuð framleiðsla tryggir að tekið sé tillit til umhverfis og heilsu í framleiðsluferlinu.
Helstu kostir:
- Tilvalið fyrir minni herbergi
- Góð millistærð fyrir yngri börn
- Falleg og tímalaus hönnun
- Hagkvæmari og einfaldari uppbygging en ECO Luxury línan
- Fæst í nokkrum litum
- Hægt að bæta við öryggisslá og skúffum
- Svansvottuð framleiðsla
Upplýsingar:
- Dýnustærð: 70 x 160 cm
- Stærð rúms: 76 x 166 x 65 cm
