Lýsing
Dúkkurnar frá Arias eru einstaklega vandaðar og fallegar. Arias er frá Alicante, öll framleiðsla á Arias dúkkunum fer fram á Spáni.
Arias er með tvær vörulínur í dúkkunum hjá sér. REBORN og ELEGANCE. Í grunninn er það sama dúkkan en REBORN er aðeins meira handunnin með litlum hlutum eins og æðum, roða, naglalakk og fleira.
Falleg skiptiaðstaða fyrir Arias dúkkurnar. Skiptiaðstöðinni fylgja 10 hlutir. Þar á meðal pelar, snuddur, bleyjur og fleira. Hægt er að geyma alla aukahlutina í fallegri körfu.
Aldur: 3 ára og eldri.
