Lýsing
Nuna Bryn™ Newborn ungbarnasæti/ruggustóll er hannaður fyrir fyrstu mánuði barnsins – þegar þörfin fyrir öryggi, nálægð og þægindi skiptir mestu máli.
Ruggustóllinn sameinar mýkt og stuðning á einstakan hátt. Notendavænt og þægilega hannað sætið heldur líkama barnsins í réttri stöðu frá fæðingu, á meðan náttúruleg hreyfing róar barnið án þess að þörf sé á rafmagni eða hávaða. Þegar þú vilt meiri stöðugleika er einfalt að stilla hann þannig að hann standi kyrr.
Efnisvalið er í hæsta gæðaflokki – blanda af Merino ull og TENCEL™ trefjum sem andar vel, hjálpar til við hitastjórnun og veitir mjúka snertingu við viðkvæma húð barnsins.
- 2-í-1 lausn – hægt að nota sem ömmustól eða sem ungbarnasæti á Nuna Bryn matarstólinn.
- Frá fæðingu upp í ~6 mánaða allt að 9 kg.
- Notendavæn og þægileg hönnun sem styður rétta líkamsstöðu barnsins.
- 5 punkta öryggisbelti heldur barninu öruggu á sínum stað.
- MagneTech™ segulspenna – lokast sjálfkrafa og einfaldar notkun.
- Ruggar eða stendur stöðugur með stillanlegum fótum.
- Bryn Ungbarnasæti/ömmustóll sem er sérhannað og hægt er að festa á Nuna Bryn matarstólinn
