Lýsing
Plásslítil, þægileg og á frábæru verði
Þægindi barnsins eru í fyrirrúmi í City Mini 2, kerran tekur mjög lítið pláss samanbrotin og er því frábær í ferðalagið eða til þess að geyma í skottinu. Hægt er að nota kerruna eina og sér eða nota hana frá fæðingu, þá með bílstól og vagnstykki sem er selt sér.
- "Quick Fold“ tækni sem gerir þér kleift að brjóta kerruna saman í einu handtaki.
- Skermur með UV 50+ vörn
- Vel fóðrað sæti leggst nánast alveg aftur og hægt er að setja fótskemil upp. Hentugt þegar börn t.d. sofa í kerrunni.
- Snúningshjól að framan með fjöðrun.
- Fótbremsa
- Hlíf með þremur stillingum og glugga
- Loftræstinet þegar sætið er í láréttri stöðu. Regn- og vindhlíf er fáanleg sem smellpassa á kerruna (selt sér).
- Stillanlegt 5 punkta öryggisbelti með axlapúðum.
- Sjálfvirkur lás sem heldur kerrunni saman þegar hún hefur verið lögð saman.
- Kerran þolir börn upp að 22,5 kg.
- Stór geymslukarfa undir kerru með aðgengi bæði framan og aftan. Karfan þolir 4,5 kg.
- Heildarburðargeta 27 kg.
- Kerran vegur aðeins 8,5 kg.